Stærðfræði getur reynst nokkuð krefjandi fyrir marga. Í myndbandinu hér fyrir neðan er komin spurning sem er alveg gríðarlega krefjandi. Sérstaklega fyrir börn undir átta ára aldri – og kannski páfagauka sem kunna að tala.
Spurningin er hvað tekur langan tíma fyrir þig að fara 80 kílómetra þegar þú ferðast á 80 kílómetra hraða á klukkustund. Þeir taka dæmið reyndar í mílum, ekki að það breyti neinu.
Í myndbandinu má sjá nokkra spekinga skeggræða þessi mál – með miklum tilþrifum.