Hér er saga sem gengur um netið og kennir mikilvæga lexíu um reiðina …
Eitt sinn gekk Búdda í gegnum þorp. Mjög reiður og dónalegur maður kom upp að honum.
„Þú átt engan rétt á að kenna öðrum.“ öskraði hann.“ Þú ert jafn heimskur og allir aðrir. Þú ert ekkert nema feik.
Búdda fór ekki úr jafnvægi, heldur spurði:
„Ef þú gefur einhverjum gjöf – en sá aðili vill ekki þiggja hana. Hver á þá gjöfina?“
Maðurinn var hvumsa að fá svona skrýtna spurningu og svaraði:
„Ég á hana því ég keypti hana.“
Þá brosti Búdda og sagði:
„Það er rétt og það er líka alveg eins með reiðina. Ef þú reiðist mér og ég verð ekki móðgaður, þá fellur reiðin aftur á þig. Ef þú vilt hætta að særa sjálfan þig þarftu að breyta reiðinni í ást. Ef þú hatar aðra verður þú sjálfur óhamingjusamur. Ef þú elskar aðra verður þú sjálfur hamingjusamur.“
Einfalt – ekki satt?