Konan hans hefur alltaf verið einstaklega listræn og hann hefur alltaf elskað teikningarnar hennar – svo þegar að það komu einhverjar litlar rispur á stuðarann á bílnum hans þá leitaði hann strax til hennar og bað hana um að fela þær með lítilli mynd.
En þegar hann sá hversu flottar teikningarnar hennar voru og hvernig þær komu út á bílnum, þá grátbað hann hana um að klára allan bílinn.
Hún samþykkti með glöðu geði og sagðist vera fegin að fá útrás fyrir listahæfileikum sínum, en það tók hana meira en 100 klukkustundir að klára að umbreyta bílnum í þetta listaverk.
Þegar að þau keyra um á þessum Nissan Skyline þá geta þau sko bókað að það er enginn með eins bíl og þau – þú finnur varla einstakari bíl en þetta.
Það er synd og skömm að þetta sé ekki atvinnan hennar, enda eru pottþétt fleiri sem myndu vilja fá svona magnað útlit á kaggann sinn.
Vel gert!