James Isaac er 9 ára gamall strákur frá Nýja-Sjálandi. Hann er með einhverfu og á það til að fá flog.
Út af þessum flogum þurfti hann að fara á spítala í nokkra daga, sem var ekki auðvelt fyrir hann vegna þess að það myndi þýða að hann yrði viðskila við hundinn sinn á meðan.
James og hundurinn eru saman allan sólarhringinn og hundurinn passar upp á hann – enda James stólar algjörlega á hann í einu og öllu!
Venjulega fá hundar ekki að koma inn á spítala en sem betur fer þá var gerð sérstök undanþága fyrir James og hundinn hans.