Auglýsing

Einstein sagði að aðeins 2% fólks gæti leyst þessa gátu – Ert þú einn af þeim?

Sagt er að Albert Einstein hafi sett fram þessa gátu og fullyrti að aðeins 2% fólks gæti leyst hana. Ert þú einn af þessum 2%?

Gátan er svo hljóðandi: HVER Á FISKINN?

Fimm hús í fimm mismunandi litum standa í röð frá vinstri til hægri. Í hverju húsi býr maður af ákveðnu þjóðerni, engir tveir af því sama. Íbúarnir fimm drekka ákveðinn drykk, reykja ákveðna vindlategund og hafa ákveðið gæludýr. Engir tveir þeirra drekka sama drykkinn, reykja sömu vindlategund eða halda sama gæludýrið. Aðrar upplýsingar:

  1. Bretinn býr í rauða húsinu.
  2. Svíinn hefur hunda sem gæludýr.
  3. Daninn drekkur te.
  4. Græna húsið er næsta hús vinstra megin við það hvíta.
  5. Íbúi græna hússins drekkur kaffi.
  6. Sá sem reykir Pall Mall heldur fugla.
  7. Íbúi gula hússins reykir Dunhill.
  8. Íbúi hússins í miðjunni drekkur mjólk.
  9. Norðmaðurinn býr í fyrsta húsinu.
  10. Sá sem reykir Blends býr við hliðina á þeim sem heldur ketti.
  11. Sá sem á hest býr við hliðina á þeim sem reykir Dunhill.
  12. Sá sem reykir Bluemasters drekkur bjór.
  13. Þjóðverjinn reykir Prince.
  14. Norðmaðurinn býr við hliðina á bláa húsinu.
  15. Sá sem reykir Blends býr við hliðina á þeim sem drekkur vatn.

Veist þú svarið?

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing