Auglýsing

Ekki missa af frumsýningu Honda Civic á laugardag í Bernhard Vatnagörðum!

Tíunda kynslóð Honda Civic verður frumsýnd hjá Honda umboðinu Vatnagörðum 24 á morgun, laugardaginn 6. maí, á milli kl. 11:00 – 17:00. Nýi Honda Civic er allt í senn sportlegur og kraftmikill, glæsilegur á götu, rúmgóður og lipur í akstri.

Honda Civic hefur löngum verið þekktur sem kraftmesti bíllinn í sínum flokki og nýjasta útgáfan sem verður frumsýnd á morgun heldur í þá hefð og gott betur. Allar umsagnir og úttektir erlendis eru á sama veg, hér er á ferðinni einn öflugasti bíll sinnar tegundar sem fram hefur komið í langan tíma og verður enginn aðdáandi Honda Civic svikinn af þessum frábæra bíl.

Í kjölfar bílasýningarinnar í Genf setti sportútgáfan Honda Civic Type R, brautarmet á Nürburgring-brautinni í flokki framhjóladrifinna bíla þegar hann fór hringinn á 7 mínútum og 43,8 sekúndum. Áætlað er að sú útgáfa komi á götuna seinni part sumars.

Bíllinn endurspeglar sköpunargáfu hönnuða og verkfræðinga Honda auk þeirrar fullkomnunar í tækni sem þeir hafa sífellt að leiðarljósi. Þrátt fyrir kraftinn er Civic sparneytinn bíll þar sem hægt er að velja á milli tveggja VTEC turbo Earth Dream véla, 129 hestafla eða 182 hestafla.

Bíllinn er léttur í akstri, einstaklega rúmgóður með sérstaklega rausnarlegt fótapláss. Að auki virðist  sem skottið nánast stækki í takt við fjölda farþega, en Honda hefur lagt mikinn metnað í að hafa farangursrými Civic rúmgóð og aðgengileg. Civic hefur komið gríðarlega vel út úr öryggisprófunum og hlaut til að mynda fimm stjörnur í alhliða prófunum NHTSA (National Highway Traffic Safety Administration).

Starfsfólk Bernard, Vatnagörðum, er afskaplega spennt fyrir að kynna þessa kröftugu viðbót við Honda hópinn sem bílaáhugamenn og -konur hafa lengi beðið eftir. Tökum vel á móti nýjum Honda Civic milli 11.00 og 17.00 á morgun í Vatnagörðum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing