Það getur verið gott að ná sér aðeins upp úr önnum hversdagsins, skella sér út fyrir bæjarmörkin og upplifa jóga og hreinsun. Það er einmitt það sem planið er hjá Sacred Seed, um næstu helgi 10-12 febrúar.
Helgin sem um ræðir býður upp á allt sem þarf til að hreinsa sig andlega og líkamlega í hjarta náttúrunnar, hreinsa það sem það sem þjónar þér ekki lengur opna fyrir nýja og nærandi orku!
Detox og Yoga slökunarhelgin er fyrir þá sem vilja hreinsa og hvíla sig vel. Þú ert boðinn velkomin með þinn ásetning og markmið fyrir árið. Hreinsunin hefst með Svitahofi og ásetningur settur fyrir helgina sem mun vera „detox“ í alla staði hrein íslensk náttúra sér um næringuna.
Gló Tonic Þeytarinn Solvi Avo Petursson sér um Detox matseðil helgarinnar og verður boðið upp á fljótandi veigar, ásamt heitum “hreinsandi” súpum og tonic drykkum. Þemað er fljótandi og hreinsandi, og að sjálfsögðu allt vegan.
Arnór Sveinsson mun leiða hópinn inn á við í gegnum Jóga, öndunaræafingar, hugleiðslur og samflot.
Sacred Seed er himneskur staður falinn í landi Syðri Reykja skammst frá Laugarvatni. Svæðið er umvafið fallegri náttúru þar sem þú getur slitið þig frá amstri hinu daglega amstri tengst þínum innsta kjarna.
Dagskráin hljóðar svo:
FÖSTUDAGUR
18:00 Mæting – Fólki er velkomið að mæta fyrr!
19:00 Svitahofs athöfnin hefst
22.00 Súpa og meðlæti
LAUGARDAGUR
-Detox djúsar í boði allan daginn-
09:00 Ræs með grænum safa
09:33 Mjúkt Morgun~Jóga, hugleiðsla og djúpslökun
11:00 Morgun~næring
12:33 Ævintýraferð í boði náttúrunnar
16:00 Fráls tími – Heitur pottur, sauna, sund og flot.
17:33 Næring
19:33 Súkulaði~Samlot (Boðið upp á te og ávexti eftir flotið)
SUNNUDAGUR
9:00 Ræs með grænum safa
9:33 Súkkulaði~Jóga – Förum í djúpa mjaðma vinnu með
andríkri tónlist og hreinsandi öndun
13:00 Loka hóf ~ Detox veisla
14:00 Loka athöfn með kveðjustund
Skráning og aðrar upplýsingar:
VERÐ: 39.000 kr í 2 og 3 manna hrebergi – Allt innifailð
Hægt er að vera í 1 manns herbergi (queen size rúm) og kostar það auka 6000 kr.
Hafir þú áhuga á að taka þátt máttu endilega senda póst á sacredseediceland@gmail.co