Kötturinn Nutmeg er elsti köttur í heimi, eða 31 árs (sem er víst rétt rúmlega 140 ára ef miðað er við mannsaldur).
Þetta gerir Nutmeg eldri en helming mannkyns þar sem helmingur mannkyns er undir þrítugu.
Eigendurnir, Liz og Ian, tóku Nutmeg að sér árið 1990 og eru óskaplega sæl með hann. Það væri óskandi að Nutmeg liti út fyrir að vera jafn sæll með þau.