Ert þú að fá ofnæmiseinkenni? Þá getur Airfree komið sér mjög vel.
Þar sem meðal manneskjan er að eyða 90% af tíma sínum innandyra – er nauðsynlegt að loftið sem hún andar að sér sé hreint og gott. Og það er ekki alltaf raunin.
Airfree eru margverðlaunuð lofthreinsitæki sem eyða 99% af frjókornum, myglusveppagróum, bakteríum, veirum, ósoni, svifryki og öðrum ofnæmisvökum úr andrúmsloftinu. Þau eyða einnig lykt og gæludýraflösu.
Hvernig virkar Airfree?
Lofthreinsitækin draga verulega úr örverum í andrúmsloftinu með því að brenna þær. Óhreint loft sogast hljóðlaust inn í tækið með varmaburði og eyðist í 200 gráðu heitum keramikkjarna þess.
Þær lífrænu agnir sem valda ólykt eyðast einnig í kjarna Airfree. Þetta ferli er algjörlega hljóðlaust, krefst ekki viðhalds og hefur verið sannreynt í fjölmörgum rannsóknum, líkt og má sjá HÉR en þú getur kynnt þér Airfree lofthreinsitækin nánar HÉR
Verslanir Eirbergs eru að Stórhöfða 25 og í Kringlunni, 1. hæð. Vefverslunina sendir svo frítt hvert á land sem er á næsta pósthús.