Instagram módel eru allar með mismunandi baksögur en fáar jafn harðar eins og bandaríska módelið Hope Isabel Howard.
Þessi 26 ára gamla stelpa átti þann draum að verða módel. En þegar hún var 19 ára gömul fór hún í allt aðra átt og skráði sig í herinn.
Hope var búin að vera í bandaríska hernum í 6 ár þegar amma hennar segir henni að hún þurfi að lifa lífinu. Þannig Hope ákvað að fylgja draumunum sínum. Hún skráði sig úr hernum fyrir einu ári og starfar nú sem módel og einkaþjálfari.
„Ég átti bæði verstu og bestu stundir lífs míns í hernum. Ég þroskaðist hratt og vel og fór að sjá heiminn í öðru ljósi. En það sem skipti mestu máli var að mig fór að dreyma aftur og þá fór ég að passa upp á mataræðið og hugsa vel um líkama minn. Það má segja að ræktin og mataræðið hafi bjargað lífi mínu“. – Hope
Hope er orðin mjög vinsæl á Instagram og er komin með 600 þúsund fylgjendur á mjög stuttum tíma. Hún er hamingjusamlega gift og elskar lífið.