Það eru til ýmsar leiðir fyrir karlmenn til að bæta sig í lífinu – og er misjafnt hversu duglegir þeir eru að sinna því. Markmiðin sem stefnt er að geta verið mismunandi og margt sem hægt er fókusa tímanum í.
Það er þó með fullri vissu hægt að segja að þessi kappi – í meðfylgjandi myndskeiði – hefur náð einhverjum áfanga. Hann er í það góðu formi að hann getur leyst Rubik kubb með einni hendi á meðan hann gerir armbeygjur með hinni.
Óháð öllu öðru er það ansi góður staðall fyrir að eitthvað jákvætt sé að gerast í lífi manns – huga og líkama!