Vill nokkuð til að þú, eða einhver sem þú þekkir, hafi keyrt á kyrrstæðan bíl við Breiðvang 8 og svo hefur þú ekkert heyrt frá eiganda bílsins.
Það er líklegast út af því að miðinn sem þú skildir eftir fauk í veðrinu sem er búið að vera undanfarið – en engar áhyggjur, hann Magnús bíður enn spenntur eftir að heyra frá þér.
Ágætu nágrannar.
Ég vil biðja þann sem bakkaði eða ók framan á bílinn minn sem var lagt við bílskúrinn minn við Breiðvang 8 að hafa samband við mig til að gera tjónaskýrslu.
Eflaust hefur viðkomandi skilið eftir miða með upplýsingum en eins og veðrið hefur verið upp á síðkastið þá hefur hann auðvitað rokið út í veður og vind.
Með góðri kveðju,
Magnús Jónsson
Breiðvangi 8