Auglýsing

Fílarðu ananas á pizzum? – Hvað með á hamborgara? – Þetta er borgarinn sem Auður gerði fyrir Hamborgarafabrikkuna!

Kengúran sigraði í hamborgarasamkeppni Fabrikkunnar og
Krónunnar! Kengúran verður fáanleg á Fabrikkunum þremur í takmarkaðan tíma!

Fyrsti hamborgarinn á Fabrikkunni með ananas Hamborgarafabrikkan og Krónan stóðu fyrir skemmtilegri hamborgarasamkeppni í sumar sem bar heitið Hamborgari Fólksins.

Eins og nafnið gefur til kynna gafst Íslendingar fengu þannig tækifæri til að láta ljós sitt skína í eldhúsinu og áttu möguleika á að vinna til glæsilegra verðlauna. Fjölmargar flottar uppskriftir bárust í keppnina en það var Auður Snorradóttir sem
bar sigur úr býtum.

Kengúran er gómsæt, frumleg og fallega framsett!
“Nei, það er ekki kengúrukjöt í honum, mér fannst þetta bara flott nafn”, sagði Auður Snorradóttir, glöð í bragði þegar hún hafði veitt verðlaununum viðtöku í Krónunni í Lindum, en Auður hlaut að launum 100 þúsund krónu peningaverðlaun, 40 þúsund króna úttekt í Krónunni og 40 þúsund króna úttekt á Hamborgarafabrikkunni. En aðalverðlaunin eru vissulega þau að nú gefst öllum Íslendingum færi á að smakka Kengúruna sem verður í boði á Fabrikkunni í takmarkaðan tíma. Kengúran skartar hágæðaungnautakjöti í Brioche brauði, hún er borin fram með grilluðum ananas, beikoni, papriku, rauðlauk , barbíkjúsósu, og spældu eggi

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing