Sumir eru þeirrar skoðunar að það sé betra að drekka áfengi undir vissum kringumstæðum – heldur en vatn.
Jelly Devote komst á öndverða skoðun. Hún skipti út áfengi fyrir vatn – og munurinn lét ekki á sér standa.
„Það eru svo miklar breytingar á því hvernig mér líður – og hvernig ég lifi lífinu. Mér hefur aldrei liðið betur. Ég er í jafnvægi. Ég drekk ekki áfengi – oftast – drekk ég bara vatn. Og mikilvægast þá hef ég farið úr því að hata mig í að elska mig.
„Ég elska sjálfa mig, ég nýt lífsins á sama tíma og ég hugsa um heilsuna. Ég er núna í besta hugarástandi sem ég hef verið í – og er fjári stolt af ferðalaginu mínu.“
Jelly segir að fólk eigi ekki að setja sér markmið um hvað er á vigtinni.
„Vigtin skiptir ekki máli. Þú skiptir máli.“ segir hún. „Hvernig líður þér með þig? Ekki fókusa á tölu sem getur hreyfst um 5 kíló tveimur dögum.“