Hjúkkan Nomie MIlls – deildi þessum ráðum á Facebook um flensuna sem nú gengur yfir. Við þýddum greinina – því hún gæti nýst vel á þessu „skemmtilega“ tímabili ársins.
Ókei fólk, ráð hjúkkunnar: Flensan er raunveruleg í ár. Lestu þetta vandlega og vertu heima Sorrí ef þú ert þegar búinn að fá hana – eða ert að upplifa reiði hennar. Vona að þetta hjálpi.
FLENSAN:
- Þú getur fengið flensuna – jafnvel þótt þú hafir fengið sprautu. Sprautan er aðeins 10% virk núna í ár.
- Það er vírus sem er með 7-14 daga span – og á þeim tíma gæti þig hreinlega langað að deyja. hiti, hrollur, höfuðverkur, sár háls, þyngsli fyrir brjósti, stíflað nef, hósti, hnerri, ógleði, niðurgangur – og beinverkir. Vírusar lagast ekki með sýklalyfjum, þeir þurfa bara að klára sig sjálfir.
- Farðu til heimilislæknisins þíns – en mundu að það er lítið sem þau geta gert. Sýklalyfin duga ekki – nema þú fáir sýkingu í lungu.
- Ekki fara á læknavaktina – nema … þú eigir erfitt með andadrátt, getir ekki haldið vökva niðri í 24 klukkutíma, niðurgangur sem fylgir svimi, hraður hjartsláttur – eða lágur blóðþrýstingur.
- Tamiflu er lyf sem er að mestu óvirkt – og er með miklar aukaverkanir og kostar mikið.
- Það er í lagi að taka verkjalyf eins og Tylenol og Advil/Motrin/ALeve í hámarksskammti – til að minnka hita, höfuðverk og beinverki. Gættu þess samt að ofgera ekki.
- Drekktu heita drykki. Farðu í heita sturtu, notaðu rakajafnara og olíur.
- Drekktu FULLT af vatni.Mjólkurvörur geta gert slímið þykkara – forðastu það. Ef þvag er mjög gult eða brúnt – þarftu að drekka meira.
- MIKILVÆGT. Það er þumalputtaregla með hósta. Ef hann er blautur – er mikilvægt að bæla hann ekki með lyfjum. Við þurfum að koma slíminu upp. Ef hann er þurr – notastu við lyf til að bæla hann. Hækkaðu höfuðið þegar þú sefur til að minnka hósta/pirring.
- Vertu reiðubúin/n ef eitthvað gerist. Gott er að eiga fyrstu hjálp við höndina. Te, súpur, djúsa og soð. Þú vilt ekki þurfa að fara að versla þegar flensan tekur yfir.
- EKKI FARA ÚT MEÐAL ALMENNINGS: Manneskja sem er veik fyrir getur einfaldlega látist ef hún smitast af þér. Ekki vera „hetja“. Haltu þig heima. Og barninu líka ef það er veikt.
- Skolaðu hendur þínar með sápu. Það er besta forvörnin gegn sýklum.