Hnefaleikamaðurinn Floyd Mayweather er launahæsti íþróttamaður allra tíma. Hann er metinn á 400 milljónir dollara og hann elskar að eyða pening.
En nú er hann ekki að reyna eyða pening heldur græða smá því hann var að setja bílinn sinn á sölu. Koenigsegg CCXR Trevita er metinn á 470 milljónir króna og er einn af tveimur svona bílum í heiminum.
Þessi bíll er ekkert grín þar sem hann er í 2.9 sekúndur að fara upp í 100 km hraða. Vinir Mayweather segja að boxarinn sé að losa sig við bílinn því hann ætli sér að kaupa snekkju sem kostar um 20 milljónir dollara.