Fegurðardrottningin Arna Ýr Jónsdóttir er stödd úti í Las Vegas um þessar mundir að taka þátt í Miss Universe 2017 fyrir hönd Íslands.
Aðalkeppnin mun fara fram næsta sunnudag en fram að því er þétt dagsskrá hjá stelpunum.
Um helgi var þjóðbúningasýning og má segja að búningurinn hennar Örnu hafi slegið heldur betur í gegn – Hún sannaði það að hún er alvöru víkingur!
Hún deildi mynd af honum inn á Instagram og þetta er það sem hún skrifaði við hana.
Hér er svo myndin sjálf – Ekki smá vígaleg!
Þetta minnir mann á eitt gamalt og gott lag – ,,We come from the land of the ice and snow. From the midnight sun, where the hot springs flow“
Áfram Arna!