Emily Ratajkowski er í Sydney í Ástralíu þar sem hún ætlar að fara á GQ Australia Men of the Year verðlaunaathöfnina – svo hún ákvað að nýta fríið og skellti sér á ströndina.
Þar vakti Emily vægast sagt mikla athygli í nýja bikiníinu sínu sem er óhefðbundið í laginu.
Bikiníið færðist víst mikið til og því endaði Emily með að sýna örlítið meira af sjálfri sér en hún ætlaði sér þegar hún valdi fatnaðinn.
En Emily hefur fyrir löngu síðan sannað að hún er alls ekki spéhrædd og lét það ekki hafa áhrif á sig. Hún skemmti sér víst vel á ströndinni með vinkonu sinni.