Undanfarna mánuði hefur Hollywood leikarinn Brad Pitt lokað sig inní listastúdíói sínu í allt að 15 klst á dag. Sagan segir að hann sé að vinna að skúlptúr undir leiðsögn breska listamannsins og vinar sinns Thomas Houseago.
Skilnaður hans og Angelinu Jolie ásamt erfiðum lagaerjum þeirra hefur augljóslega tekið sinn toll en gott er að sjá að Brad hefur fundið sér áhugamál til að vinna úr tilfinningum sínum.
Erlendir fréttamiðlar vilja meina að kallinn taki sig eitthvað illa út, sé horaður og líti út eins og Justin Bieber á bótum. En okkur finnst hann flottur! Ætli hann sé ekki bara í undirbúningi fyrir næsta hlutverk?