Einn íslenskur strákur var staddur í París og fór inn á síðu http://escortzone-fr.com/ – en þar er boðið upp á vændi. Þetta kemur fram á vefnum eirikurjonsson.is
Íslendingnum brá þá heldur betur í brún þegar hann rakst á myndir af engri annarri en Ásdísi Rán. En hún hét nú bara ekkert Ásdís Rán – heldur Alicia_BLONDE og átti að vera 23 ára gömul frá Póllandi.
Um var að ræða stolnar myndir af ísdrottningunni okkar sem síðan notar til að lúra inn viðskiptavini.
Þetta er ómaklega gert við ísdrottninguna sem flýgur nú þyrlum um víða veröld – og gerir það gott.