Söngkonan Selena Gomez sem er einmitt fyrrverandi kærasta Íslandsvinarins Justin Bieber, er búin að fá sér tattú.
Það var svo sannarlega ekki jafn myndarlegt og fyrrverandi kærastinn skartar – heldur er það bara lítið og pent og segir bara „x31“ – en það er merkið fyrir „Ommm“ möntruna sem hefur mikið vægi í allri hugleiðslu og er ætlað að hreinsa hugann af hugsunum.
Andlegri Selena Gomez – það er nokkuð ljóst.