Þessi ungi drengur sem situr þarna á áhorfendapöllunum ætlaði sér bara að spila fótbolta en með aldrinum varð hann alþjóðlegt kvennagull.
Á unglingsárum gekk drengurinn í gegnum vandræðalegt tímabil og vildi alls ekki láta taka af sér myndir.
Þegar drengurinn fór að vinna með hárið á sér þá fóru ungir menn um allan heim að herma eftir hárstílnum sem var misjafnlega vel heppnaður.
Hér var hann að vinna með síddina.
Enginn veit hvað hann var að vinna með hér?
Það er mikil vinna fólgin í að verða kynþokkafyllsti maður heims en þvílíkur árangur!
Með aldrinum og stuðningi Victoríu eiginkonunnar þá er ungi drengurinn kynþokkafyllsti maður heims árið 2015 samkvæmt tímaritinu People.
Það er óhætt að þakka David Beckham fyrir vel unnin störf. Takk fyrir okkur!