Mæðgurnar léku sér aðeins að flagaranum.
Zack fann sig í heldur sérkennilegum aðstæðum. Eftir að hafa verið á Tinder paraði hann sig saman við eina stúlku sem var tvítug – og aðra sem var 37 ára. Það sem Zach fattaði ekki var að þær voru mæðgur.
Hann var greinilega að hræra í mörgum pottum því hann bauðst til að hitta þær báðar sama kvöldið.
Mæðgurnar, Vicky og Chelsea, létu ekki slá sig út af laginu og léku sér að því að svara honum þangað til þær afhjúpuðu tenginguna.
Zach hélt samt áfram í veikri von og reyndi að hitta þær saman. Honum varð hins vegar ekki kápan úr því klæðinu …
Samskiptin má sjá hér að neðan.