Þrátt fyrir að Covid hafi sett upptökur á Stranger Things þáttaröðinni í biðstöðu þá hafa höfundar staðfest að fjórða þáttaröðin verður ekki sú síðasta í röðinni. Það er búið að ákveða hversu lengi þættirnir verða látnir ganga og í nýlegu viðtali sögðu höfundar að fimmta sería færi í loftið. Þeir gáfu svo í skyn að líklega yrði haldið áfram eftir fimmtu seríu.
Aðdáendur um allan heim hafa fagnað þessum fréttum enda Stranger Things í uppáhaldi hjá mörgum Netflix notendum. Hér að neðan má sjá brot úr fjórðu þáttaröð Stranger Things.