Við erum flest í einhverri leit að hugarró og hamingju. Hann Louis Boria fann hugarró sína í gegnum það að prjóna. Hvert sem hann fer og næstum hvað sem hann er að gera, þá prjónar hann á sama tíma.
En konur og karlar gagnrýna hann harðlega fyrir það og finnst það ekki passa við hann…án þess að segja sérstaklega að það sé út af því að hann er karlmaður.
Hann lætur það ekkert á sig fá og hvetur alla til að gera það sem þau elska og hafa gaman að, sama hvað þau halda að sé viðeigandi eða ekki: