Norðmaðurinn Lasse Matberg, er þrítugur hermaður og hjartaknúsari sem er búinn að slá í gegn á Instagram – með síðu ljósu hári og myndarlegu skeggi.
Lasse er hávaxinn og vöðvastæltur og hefur fengið viðurnefnið „Víkingurinn“ – en hann er líka alveg óhræddur við að sýna á sér viðkvæmar hliðar, eins og þegar hann er að knúsa hvolpinn sinn.
Hann er líklega allt það sem konur vilja. Og sumir karlmenn líka.