Forbes nefndi þennan unga herramann yngsta karlkyns milljarðamæring í heimi og eins og þið sjáið þá er Instagram síðan hans alveg í stíl við það.
Maðurinn sem um ræðir er 26 ára nágranni okkar frá Noregi, sem heitir Gustav Magnar Witzoe – maður sem kann að njóta lífsins.
Og hvaða bransi gerir hann svona rosalega ríkan? Nú fiskeldi. Hann á helminginn í Salmar ASA, sem er eitt stærsta laxafiskeldi í heiminum – eitthvað sem hann fékk í 19 ára afmælisgjöf frá pabba sínum sem stofnaði fyrirtækið árið 1991.