Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkmaður Íslands, er að fara að gifta sig – og af því tilefni var hann steggjaður nú um helgina. Partur steggjunarinnar var að félagar hans settu það sem kalla mætti vandræðalegar myndir af honum á netið.
Myndirnar voru af Hannesi kannski ekki í sínu besta formi – en textinn við þær – var rangt stafsettur – og með klisjukenndri hvatningu. Líkt og sjá má.
Hannes útskýrði svo stöðu mála í dag – þetta hafði ekki verið eins og fólk gæti hafa haldið.
Hannes sagði á Facebook:
„Þessir mættu í óvænta steggjun til Danmerkur. Frábær dagur að öllu leyti fyrir unta þegar þessir pappakassar tóku yfir instagramið og facebook og póstuðu eins asnalegum færslum og þeim gat dottið í hug.“