Við erum með leik á Facebook-síðu Menn.is – þar sem þú getur unnið hreindýraborgarann sem er með ísbúa, sveppamæjonesi, epli velt upp úr hunangi og jólabjór.
Í aðdraganda jólahátíðarinnar er fátt huggulegra en að sitja í góðra vina hóp á veitingstað og gæða sér á góðum mat.
Á Grillmarkaðnum er yndislegt andrúmsloft og frábær matur. Staðurinn hefur lagt mikla vinnu í samstarf við bændur landsins. Úr verður óvænt matargerð þar sem íslensk hefð og nútíminn mætast.
Upplifun á sér stað í íslensku umhverfi þar sem náttúran fær að njóta sín. Hluti af farsælu starfi Grillmarkaðsins á rætur sínar í góðri samvinnu við íslenska framleiðendur sem leggja staðnum til gæðahráefni.
Í samstarfi við Grillmarkaðinn erum við á Menn.is að gefa hreindýraborgara sem er með ísbúa, sveppamæjonesi, epli velt upp úr hunangi og jólabjór.
Í myndbandinu hér að neðan geturðu séð hvernig herlegheitin líta út!