Janne er ekki sátt við hvernig konur eltast við útlitið.
Janne Robinson skrifaði ansi harðortan póst á Facebook um menningu nútímans – þar sem hún hvetur konur til að hætta að breyta sér.
Konur, vinsamlegast hættið að sprauta skít í varirnar á ykkur.
Hættið að taka húð af rassinum og setja hana í andlitið á ykkur.
Hættið að láta sauma sílikon í brjóstin á ykkur.
Ég er komin með nóg af því að konur líti eins út.
Ég er þreytt á fjöldaframleiddum gervikonum með brjóst sem eru ekki alvöru, varir sem eru ekki alvöru og augabrúnir sem líta út eins og þær drekki 10 kaffibolla á dag.
Leyfðu líkama þínum í Guðanna bænum að vera.
Og til kvennanna sem hafa vonandi ekki breytt sér – sem hafa áhyggjur að brjóstin séu ekki nógu stór, eða að þær séu of strákalegar, eða varirnar of þunnar, eða að þær hafi hrukkur þegar þær hlæja – þú varst saumuð af höndum himnanna, af henni sem er skaparinn, af öllu sem er og öllu sem ætti að vera.
Ég er svo þreytt á að horfa á konur líta eins út.
Ég er svo þreytt á að sjá framleidd, máluð andlit, með litað hár – í litlum kjólum.
Þú hefur verið mötuð af rangri tegund af „sæt“ síðan þú opnaðir augun, og mér þykir það leitt.
Mér þykir leitt að þú hafir haldið að þú hafir verið nokkuð annað en fullkomnun þegar þú komst í heiminn.
Mér þykir leitt að þú hafir haldið að þú værir meira virði, fallegri ef þú minnkaðir, stækkaðir, plokkaðir, saugst og málaðir allt í burtu.
Það ætti að vera glæpur að breyta okkar eigin holdi – kjötpokarnir okkar eru þreyttir á að vera potað í, breyttir og strekktir.
Hættu við. Hættu við. Hættu fokking við!
Ég vildi ég gæti staðið yfir þér hjá lýtalækninum.
Komdu þér burtu!
Komdu þér inn í sálina – sálin þín æpir á að það eina sem þú þarft er hjarta sem slær og andi sem grætur og fætur sem vilja taka yfir jörðina.
Vinsamlegast, Jesús fokk, hættu að sauma rassinn á andlitið á þér.