Allir þeir sem lent hafa í því að haldið hefur verið framhjá þeim þekkja þörfina fyrir hefnd. Sumt fólk fyllist skyndibræði og rústar bílum eða kveikir í fötum.
Aðrir fara yfirveguðu leiðina í leit sinni að hefnd. Hugsa vel og skipuleggja sig.
Það er nákvæmlega það sem Laura Arnolds 42 ára gömul bresk kona gerði þegar hún sá skilaboð á síma mannsins síns og upgötvaði að hann væri að halda framhjá sér.
Maðurinn hennar fór í „viðskiptaferð“ til New York, en Laura hafði séð í skilaboðunum að hann var að fara til að hitta hina konuna.
Á meðan á ferðinni stóð pakkaði Laura niður í hvelli og seldi húsið þeirra.
Þegar maðurinn hennar kom heim fann hann sex háskólanema í húsi þeirra hjóna.
Foreldrar Lauru eru efnaðir og höfðu keypt húsið á nafni Lauru svo planið hennar virkaði 100%. Hún segir að samskipti þeirra fyrrum hjóna séu ekki góð á þessari stundu enda skilnaðarferli í gangi.