Kate Grey er öflug sundkona og hefur unnið verðlaun á Ólympíuleikum fatlaðra. Hún missti vinstri hendina þegar hún var tveggja ára í pylsuvél en hefur sko ekki látið það stoppa sig. En hún hefur aldrei gripið neitt með vinstri höndinni…fyrr en nú.
Á svipstundu 3-D prentuðu Open Bionics út vélhendi fyrir Kate til að prufa og hér er myndband af henni þar sem hún er að grípa bolta með vinstri hendinni í fyrsta skipti á ævinni:
Sumum þykir kannski ekkert merkilegt að grípa eitthvað með vinstri hendinni, en eins og sést í myndbandinu þá fannst Kate það undravert. Til hamingju Kate – flott hjá ykkur Open Bionics!