Gemma Laird var aðstoðarkennari við Bloemfontein grunnskólann í Craghead á Englandi, en hún hafði bara unnið í skólanum í viku þegar foreldrar barnanna fundu myndir af henni þar sem að hún hafði unnið sem undirfatamódel.
„Skólastjórinn kallaði mig á fund og sagði að foreldrar barnanna hefðu fundið módelmyndir á Facebook síðunni minni – og til að halda í ímynd skólans þyrftu þau því miður að láta mig fara.“
„Ég var í sjokki,“ sagði Gemma, sem gekk mjög vel með börnunum og skilur engan veginn þessa ákvörðun.