Auglýsing

Hvernig á að þrífa typpi? – Praktískar leiðbeiningar

Það er auðvitað lykilmál fyrir hvern karl að hafa kónginn kátan. Við rákumst á þessa grein á doktor.is og ákváðum að deila henni áfram.

Þetta er sá líkamshluti sem er flestum karlmönnum hvað mikilvægastur svo það er áríðandi að halda honum hreinum og heilbrigðum svo hann geti þjónað sínum tilgangi sem best. Með því að annast þennan líkamshluta vel gagnast það ekki eingöngu sjálfum þér vel  heldur bólfélaganum líka.

Það eru ótrúlega margir karlmenn sem eru ekki að þrífa vel undir forhúðinni og lenda þannig í því að fá sýkingar og önnur vandamál auk þess sem það getur verið  mjög óaðlaðandi fyrir bólfélagann.

Þvoðu typpið og kónginn vandlega með volgu vatni á hverjum degi þegar þú ferð í sturtu eða bað. Íslenskir karlmenn eru sjaldan umskornir og þurfa því að gæta þess að draga forhúðina tilbaka og þvo undir henni.

Ef það er ekki gert safnast saman hvítleit skán sem líkist smurosti og er kölluð á ensku „smegma“

Smegma er náttúrulegt sleipiefni  sem heldur húiðnni á kónginum rakri og auðveldar hreyfingu á forhúðinni.  Ef það safnast saman og er ekki þvegið burt fer það að lykta illa, það verður erfiðara að draga forhúðina tilbaka og það geta myndast kjöraðstæður fyrir bakteríur. Þetta getur svo valdið sýkingu sem kallast „balanitis“

Gott hreinlæti er mikilvægt en  of mikil sápa eða sturtugel getur valdið ertingu, roða og sársauka.

Volgt vatn dugar og sápa er óþörf  ef þú þværð þér daglega. Ef þú vilt endilega nota sápu þá þarf að gæta þess að nota hana sparlega , nota ilmefnalausa og helst ofnæmisprófaða sápu og skola hana vel af til að draga úr hættu á ertingu. Aldrei má setja púður eða lyktareyðandi af neinu tagi undir forhúðina því það veldur ertingu.

Umskornir karlmenn þurfa að þrífa sig daglega með sama hætti, nota vatn og helst enga sápu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing