Íbúum Breiðholts blöskraði umgengnin í fellunum en í gær sáu þau dýrshræ liggja á grasi hjá Unufells afleggjaranum.
Það voru allir sammála um að þetta væri ógeðslegt og óásættanlegt.
Margir fóru að velti því fyrir sér hvers konar hræ þetta væri…
og sumir komu með kenningar um það hvernig hræið komst þangað.
Sama hvaðan það kom er þetta algjörlega ekki í lagi og hefur lögreglan verið látin vita. Hræinu verður fargað en þangað til er veisla hjá fuglunum í Efra Breiðholti.