Auglýsing

Instagram-kóngurinn Dan Bilzerian tapaði 6,7 MILLJÖRÐUM á síðasta ári en lét það ekki trufla heimsókn til Íslands – myndir

Instagram-kóngurinn Dan Blizerian hefur notið lífsins á Íslandi í sumar þó hann sé að tapa ótrúlegum upphæðum á misheppnuðum fjárfestingum. Blizerian varð frægur fyrir brjálaðan lífstíl þar sem hann ferðast um í einkaþotum með fyrirsætum og eyddi meiri peningum á einum degi en flestir þéna á ævinni.

Blizerian segist hafa grætt milljarða því að spila póker en sumir telja þó að hann sé einfaldlega að lifa af peningum sem pabbi hans gaf honum og að lífstíllinn sé fjármagnaður af styrktaraðilum. Hvort sem reynist rétt þá er ljóst að hann er orðinn töluvert fátækari eftir misheppnuð viðskiptaævintýri á síðasta ári.

Eitt af fyrirtækjum hans átti að græða á vörum tengdum kannabis og áfengi en svo virðist sem Blizerian hafi eytt öllu í markaðssetningu án þess að ná miklum árangri. Verið er að skoða fjármálin hjá fyrirtækinu sem tapaði 6,7 milljörðum á síðasta ári.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Blizerian kemst í vandræði en virðist alltaf ná sér á strik aftur. Vonandi að fríið á Íslandi hafi gert honum gott.

 

 

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing