Auglýsing

Íslensk flugfreyja lenti í KLÚRUM flugstjóra sem hætti ekki að reyna við hana

Íslenskar flugfreyjur stimpluðu sig inn í #metoo vakninguna – og hér er ein slík saga frá flugfreyju sem lýsir raunum sínum af klúrum flugstjóra sem hætti ekki að reyna við hana.

Ég var nýbyrjuð og þetta var fimmta flugið sem ég fór í. Ég var í aftara eldhúsi og freyjan með mér var karlmaður. Hann kom vel fyrir fyrst og var skemmtilegur og hress. Hann var búin að segja nokkra klúra brandara og ég sem er öllu jafna ekkert mjög viðkvæm fyrir svoleiðis tali tók vel í grínið. Dónatalið ágerðist þó og það var orðið þannig að ég gat ekki sagt neitt nema að hann snéri því upp í eitthvað dónalegt sama hversu fáránlegt það var t.d.
Ég: “Viltu rétta mér bollana?”

Hann: “Hvað langar þig að gera við þessa grjótharða og stinna kaffibolla?”

Í turnaround-inu var bongó blíða og öll áhöfnin settist út á stiga að sóla sig. Hann hélt áfram með dónatalið sem beindist allt að mér. Yfirfreyjan sagði á endanum að hann skildi nú hætta með þetta tal, þetta væri komið yfir strikið. Hann svaraði einhverju á það leið að það þyrfti að kenna nýliðunum hvernig þessi flugbransi virkaði. Það væri ekki hægt að vera með einhverjar teprur í vinnu og hann væri að herða mig. Enginn úr áhöfninni sagði neitt við þessu svari hans.

Við förum svo að gera klárt fyrir heimflugið og ég er aftur í eldhúsi þegar hann kemur út af klósettinu aftur í og kominn úr vinnuskyrtunni, á hlýrabol. Hann sagðist vera að drepast úr hita því ég væri svo heit og spurði mig ítrekað hvort mér þætti hann ekki sexy bara á hlýrabolnum. Ég reyndi að eyða öllu þessu tali og var fegin þegar hann drullaðist aftur í skyrtuna áður en farþegarnir mættu um borð. Svo hélt dónatalið áfram endalaust og meðal annars spurði hann mig hvort að kærastinn minn væri að ná að fullnægja mér og hvort ég hefði hugsað mér að nýta nýja starfið til þess að halda framhjá.

Hann notaði hvert tækifæri til þess að standa mjög nálægt mér og koma við mig. Hann ákvað á einum tímapunkti að fá pennann minn lánaðan sem ég var með fastan í hálsmálinu án þess að spurja. Hann strauk bara allt í einu upp eftir bringunni á mér og hálsinn á mér áður en hann náði pennanum af mér og sagði svo þegar ég spurði hvað hann væri eiginlega að gera:”Hvað má eg ekki fá pennann þinn lánaðan í smá stund, ekki vera svona viðkvæm!”

Svona gekk þetta endalaust áfram á heimleiðinni og ég reyndi að vera sem minnst nálægt honum. Ég var búin að biðja hann amk 3 sinnum að hætta þessu tali en hann lét sem hann heyrði það ekki. Þegar við settumst niður fyrir lendingu, bað ég hann mjög ákveðið um að hætta þessu tali, þetta væri orðið alltof mikið og mér liði illa með þetta. Hann hló og sagði að það væri sexy að ég væri svona reið yfir þessu og hann sagðist þakka fyrir að vera beltaður niður því annars myndi hann örugglega fara bara á mig núna. Svo sagðist hann var rosa fúll yfir því að við hefðum ekki fengið neitt stopp saman í mánuðinum því hann ætlaði sko pottþétt að banka hjá mér og sýna mér hvernig hægt væri að halda framhjá í þessari vinnu án þess að neinn kæmist að því. Já þessi maður er giftur!

Flugið kláraðist loksins og hvað gerði ég? Ekkert! Ég ætlaði nú ekki að vera viðkvæmi nýliðinn sem færi að klaga samstarfsfélaga sinn eftir 5 flug. Nokkrum árum síðar er það ennþá mitt fyrsta verk þegar ég fæ skrána að athuga hvort ég hafi nokkuð fengið flug með þessum manni. Sjúkt!

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing