Hér er mynd af hinum nýgiftu taka við vinningnum frá Jóni Óla Ólafssyni hjá Gaman Ferðum en það er að sjálfsögðu Betsson sem gefur vinninginn.
Betsson var nú með leik á dögunum á Facebook þar sem þeir gáfu miða á leik Arsenal – Manchester City sem fer fram þann 31. mars næstkomandi. Um er að ræða sannkallaða lúxusferð með Gaman Ferðum þar sem nánast allt er innifalið, flugið, gisting fyrir tvo á Cumberland Hotel í London og miði fyrir tvo á stórleikinn.
Sá heppni sem vann miða á leikinn heitir Jón Ingi Jónsson – en hann ákvað að bjóða konunni, Birnu Dögg Jónasdóttur með sér. Og það mætti segja að vinningurinn hafi komið á ansi heppilegum tíma.
„Konan átti afmæli daginn sem ég vann – og svo vorum við að gifta okkur síðasta laugardag. Þannig þessi ferð kom eins og himnasending“, sagði Jón Ingi sigurreifur.
Það mætti segja að karma sjái um sína – þú hefur átt næga innistæðu þar?
Já – ekki spurning.
Það hefur ekki komið til greina annað en að bjóða konunni þótt að þetta hafi verið fótboltaleikur?
Félagarnir létu auðvitað aðeins heyra í sér – en það kom aldrei annað til greina en að bjóða konunni. Við erum búin að fá pössun fyrir börnin okkar, þannig nú eigum við tíma fyrir okkur sjálf.
Á að gera eitthvað sniðugt í London – fyrir utan leikinn?
Verður bara gaman að skoða borgina – og svo langar mig líka itl að sjá Queen Show.
Við á Menn.is óskum hinum nýgiftu innilega til hamingju með brúðkaupið og þessa himnasendingu!