Justin Bieber er hrifinn af húðflúrum og er með rúmlega 60 talsins á líkamanum. Á dögunum kom hann við í Beverly Hills hjá Dr. Woo og lét setja fremur stórt húðflúr á hálsinn.
Hann hefur fengið mörg „like“ á Instagram en samkvæmt skoðanakönnun BuzzFeed þá er fólk almennt á því að frétt um þetta húðflúr hafi verið mistök. Hvort það er fréttin eða húðflúrið er ekki alveg á hreinu – en stutt leit á samfélagsmiðlum sýnir fremur slæm viðbrögð við þessu húðflúri.
En þeir sem lifa í heimi húðflúra vita meira um málið en almenningur svo það er betra að spyrja sérfræðingana hvort þetta sé töff eða ekki.