Samkvæmt rannsókn sem var birt í Journal of Medical Science, ofmeta karlar hversu lengi þeir endast í rúminu um 31%.
Þeir segjast endast að meðaltali um 1,9 mínútu lengur en raunin er.
Samfarir 474 karlmanna voru mældar í fjórar vikur. Það kom í ljós að meðalmaðurinn endist í sirka 6 mínútur – og þeir sem fóru yfir 21 mínútu voru það fáir að þeir voru taldir skekkja rétt meðaltal.
Enn fremur kom í ljós að karlar á aldrinum 31-50 ára entust lengur en þeir sem voru 18-30 ára.
Þannig menn virðast bara verða meiri folar með aldrinum!