Módelið Kate Upton sem er 24 ára verður á forsíðu Sport Illustrated í þriðja skiptið. Hún var valin í staðinn fyrir Serena Williams og Christie Brinkley.
Samkvæmt Daily Mail hagaði Kate sér eins og risa díva og lét fólkið á setti finna fyrir því að hún væri stjarnan þarna. Sport Illustrated hjálpuðu Kate 2011 að koma sér á kortið með því að setja hana á forsíðuna í fyrsta skiptið.
Kate setti smá sýnishorn á Instagram til að gera aðdáendur hennar spennta.
Hún segist vera svo þakklát og spennt að fara vinna aftur með Sports Illustrated. Allt eru þetta mjög flottar myndir enda er Kate reynslubolti þegar kemur að svona myndatökum.