Það er getur verið erfitt að ákveða að reyna við aðra manneskju. Óttinn við höfnun býr í brjóstum okkar allra og oft sleppum við því að gera hlutina bara til að verða ekki særð.
Sumir eru síðan alveg lausir við þennan ótta – jafnvel OF lausir við hann, svo þeir haga sér eins og vitleysingar.
Það á við um þennan blessaða náunga sem fór með hundinn sinn á hlýðninámskeið og ákvað svo að reyna við konuna sem kennir námskeiðið:
Hann er algerlega blindur á merkin sem hún er að gefa. Það er vonandi að hún hafi fengið frið frá honum eftir þetta!