Dreymir þig um að flýja kuldann og stinga af í sólina en vantar ferðafélaga til að fara með þér á vit ævintýranna? Hvernig líst þér á að skreppa til Kosta Ríka, Gvatemala, Belize og Mexíkó í 30 daga ferð með 7 öðrum ævintýragjörnum Íslendingum? Kilroy er með svarið fyrir þig.
Um er að fræða ferð sem er frá 15.02.2018 – 17.03.2018 og það er pláss fyrir 8 manns á aldrinum 18 – 30 ára. Samgöngur, gisting, og heill hellingur af spennandi afþreyingu er innifalið í verðinu. Kilroy setti saman þétta dagskrá af mögnuðum upplifunum en pössuðu þó að hafa nægan tíma fyrir slökun og letilíf inn á milli.
Það er enginn farastjóri í ferðinni heldur er hópurinn að ferðast á eigin vegum á milli staða. Á hverjum áfangastað er svo skipulögð dagskrá þar sem lókal leiðsögumenn eða kennarar taka á móti hópnum og sjá um skipulag.
Nokkrir hápunktar ferðarinnar:
- Viku surfskóli í Santa Teresa í Kosta Ríka.
- 18 daga ævintýraferð um Gvatemala, Belize og Mexíkó.
- Heitar náttúrulaugar, virk eldfjöll og fljótandi hraun.
- Snorklferð innan um hákarla og Manta Rays.
- Fornar Maya-borgir inn í miðjum frumskóginum.
- Og margt, margt fleira
Til sjá nánar um ferðina – og dagskránna – kíktu þá HÉR!