Miley Cyrus mætti til Joe Rogan í vinsælasta hlaðvarp heims til að ræða allt milli himins og jarðar. Þau fóru yfir slys sem hún lenti í sem barn, gæludýrafíkn hennar, edrúmennsku, fjölmiðla, skilnaðinn við Liam Hemsworth og margt fleira.
Þau voru að horfa á dansatriði með dragdrottningum á skjánum þegar Joe sagði að allar dragdrottningarnar gerðu sömu hreyfingarnar aftur og aftur.
Miley svaraði þá: Sama og ég hugsa þegar ég hlusta á þáttinn þinn. Alltaf það sama aftur og aftur!“
Hér er klippan þegar Joe Rogan gagnrýnir dragdrottningar og svar Miley:
Joe Rogan was NOT ready for that ? pic.twitter.com/DdBr3gvySM
— ً (@wtfdoik) September 2, 2020
Það er óhætt að mæla með hlustun á allt viðtalið í heild sinni.