Hann Kristinn Theodórsson biður nú netverja um hjálp við að finna bílinn þeirra og þýfið sem í honum er – bíræfnir þjófar stálu frá þeim á meðan þau sváfu.
Getur þú hjálpað honum með upplýsingar um málið eða með því að deila færslunni?
Hjálp, kæru vinir!
Þurfum að finna þennan bíl.
Það var brotist inn hjá okkur í nótt. Allt tekið úr forstofunni. Allar yfirhafnir og skór – og það sem meira er lyklarnir úr úlpu notaðir til að stela bílnum hennar Pálínu.
Þetta er dökkblár Ford Grand C-Max árgerð 2012-2013.
Er með númerinu PS-L82
En við höfum ástæðu til að ætla að það sé búið að skipta um númer og sé núna IH-H16.
Endilega látið þetta berast. Deila deila.
Ég er svo í síma 8408240 ef eitthvað kemur í ljós.
Takk!