Í tilefni af degi rauða nefins hefur lagið Skólarapp fengið glænýtt „remix“ sem var frumflutt í þættinum sjálfum.
Helgi Sæmundur og Auður smíðuðu þetta „remix“ og fluttu lagið ásamt 21 af heitustu röppurum Íslands.
Einnig má sjá upprunalegu rapparana, Þorvald Davíð Kristjánsson og Söru Dís Hjaltested, bregða fyrir í myndbandinu, nú í nýjum hlutverkum.