Ýmiskonar veikindi og hundar sem elska að borða heimanám eru vinsælar afsakanir nemenda þegar þeir meika ekki að mæta í próf – eða gleyma að læra heima.
Terrell Finner læknanemi við Columbia háskólann í New York náði hins vegar nýjum hæðum í húmor og afsökunum – þegar hann sendi kennara sínum að hann kæmist ekki í próf. Ástæðan var sú að hann væri á spítala – og fylgdi neðangreind mynd til útskýringar.
En sérðu eitthvað bogið við hana?
Jú, merkilegt nokk þá eru öndunarleiðslunar í raun bara Apple heyrnatól.
Og svo lék hleðslusnúran greinilega líka stórt hlutverk.
En sem betur fer þá komst hann svo heim af „spítalanum“ – en þarf samt áfram á súrefni að halda…