Auglýsing

Nú er lúxus snekkja ekki nóg – Manngerðar LÚXUS EYJAR eru inn! – MYNDIR

Svona ef milljarðamæringum heimsins er byrjað að leiðast lúxus snekkjurnar sínar – þá geta þeir alltaf bara keypt sér manngerða lúxus eyju í staðinn.

Það er fyrirtækið Migaloo Private Submersible Yachts sem stendur að hönnun eyjanna – en þær geta verið eftir höfði hvers og eins.

Tæknin er til staðar og milljarðamæringar heimsins verða bara ríkari og ríkari með hverjum degi sem líður – svo þeir ættu vel að geta spanderað í svona.

Allt á eyjunni er hannað í lúxus stíl – og ekki má gleyma penthouse íbúðinni sem er í 80 metra hæð yfir sjávarmáli. Þangað má auðvitað fara með lyftunni.

Ekki ónýt pæling fyrir efri árin svona ef það gengur vel að leggja inn á lífeyrissjóðinn …

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing