Rachel E. White, frá Hamilton College, og Emily Prager og Catherine Schaefer frá University of Minnesota – gerðu rannsókn á athygli barna. Þau fengu 4-6 ára börn til að gera leiðinlegt verkefni í 10 mínútur. Ef þeim leiddist máttu þau fara leika sér í iPad.
180 krakkar voru sett í þrjár aðstæður, „stjórnunarhóp“ – sem átti að hugsa verkefni út frá sjálfum sér. Hóp 2 sem átti að hugsa um sig í þriðju persónu (Er Hanna dugleg) – og þriðji hópurinn sem átti að ímynda sér að hann væri ofurhetja: (Batman, Bubbi Byggir, Dora the Explorer).
Niðurstöður rannsóknarinnar urðu þær að krakkarnir sem ímynduðu sér að þau væru ofurhetjur unnu lengur og harðar við verkefnið og leituðu ekki eins mikið í iPadinn.
Þá er bara spurning hvort þetta virki fyrir fullorðna líka, allavega var ég Batman þegar ég skrifaði þessa grein – og það gekk ofurvel!