Á laugardaginn 29. júlí næstkomandi mun hljómsveitin One Week Wonder stíga á stokk í kjallaranum í Hard Rock.
One Week Wonder er hljómsveit stofnuð árið 2014 þegar meðlimir þess voru í hljóðupptökunámi í Berlín. Sveitin spilar draumkennt pop hefur verið líkt við hljómsveitir á borð við Pink Floyd og Air.
Hljómsveitin hefur átt góðu gengi að fagna upp á síðkastið en ásamt því að fá verðlaun fyrir myndband ársins á nýafstöðnum íslensku tónlistarverðlaunum hefur lagið Angel eyes fengið góða spilun á útvarpsstöðvum og náði t.a.m. öðru sæti á vinsældarlista rásar tvö.
Þá er sveitin nýkomin heim frá Texas þar sem þeir komu fram á South by south west tónlistarhátíðinni við góðar undirtektir tónleikagesta. Um þessar mundir sitja drengirnir með bogin bök yfir hljóðfærum sínum og hnoða saman ný lög og fáum við sjálfsagt að heyra brot úr þeim þetta kvöld.
Það kostar 2.000 kr inn og hægt er að finna viðburðinn á Facebook HÉR!